Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Vivaldi'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður og í skjóli fyrir næðingum.
Blómalitur
Föl purpurableikur með milli-purpurableika jaðra og með miðtaugar.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
85 (90-120) sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Blómin eru opin, flöt, vita upp á við, föl purpurableik innan, með dökk-purpurableikri slikju, oddar ytri blómhlífarblaðanna eru gulgrænir, dálítil hæring í gininu, ginið er með ljósgulgrænni slikju, að utan eru blómhlífarblöðin föl purpurableik með milli-purpurableika jaðra og með miðtaugar sem eru með grænhvíta slikju og litlar dökkrauðar doppur í gininu. Hunangskirtlar eru milli-purpurarauðir. Frjó milli-appelsínulit. Blóm 75-150 mm breið. Blómhlífarblöð 70×45 mm, hvorki bylgjuð né baksveigð.Stönglar 85 (90-120) sm háir, græn, með um 11 blóm. Lauf stakstæð 105×15 mm, milligræn.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðunum, http://www.blogspot.com, http://www.bhg.com, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.Myndar ekki fræ, blómin ófrjó eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ. e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt og heitt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 20-30 sm millibili.Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukar (2 stk.) voru keyptir í Lystigarðinn 2005, önnur plantan blómstraði mikið 2010 og hafði myndað nýja stöngla síðan 2005 enda á sólríkum stað þar sem vel er borð á og vökva, hin blómstraði ekki 2010 en hafði myndað nokkra nýja stöngla frá 2005.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.