Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Mont Blanc'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Austurlandablendingur (Oriental hybrid).
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur, (eða í hálfskugga).
Blómalitur
Hvítur til rjómahvítur, með smáar, dumbrauðar doppur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
45-60 sm en getur orðið 60-90 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Stönglar eru 45-60 sm en geta orðið 60-90 sm háir. Laufið er glansandi. Blómin eru ilmandi, breið, opin, hvít til rjómahvít, með smáar, dumbrauðar doppur í miðjunni, 151-300 mm og vita upp á við eða út á við, blómhlífarblöðin eru baksveigð.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Harka
5
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðunum,http:www davesgarden.com,http://www.answers.yahoo.com,http://www.americanmeadows.com
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum og með laukhreistrum. Myndar ekki fræ, blómin ófrjó, eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ. e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur, (hálfskuggi getur líka gengið a.m.k. erlendis), í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana 15 sm djúpt með 20-40 sm millibili. Gróðursett í beð eða beðkanta, einnig í ker t.d. á svalir.Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.Góð til afskurðar.
Reynsla
Laukar voru keyptir í Lystigarðinn 1991 og 1992, plantan var góð 2002, og báðar blómstruðu 2010 eða voru með knúbba í ágúst-september og höfðu myndað marga nýja stilka síðan þeim var upphaflega plantað.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Austurlandablendingar eru þekktar núorðið. Þeir eru í grunninn blendingar Lilium auratum og L. speciosum og þessir blendingar hafa verið víxlfrjóvgaðir með allmörgum liljutegundum frá meginlandi Asíu. Blóm þessara blendinga eru flöt, ilmandi og vita út á við. Plönturnar eru yfirleitt hávaxnar og blómin geta verið mjög stór. Dæmi er hin rauða Star Gazer og hin hvíta Casa Blanca. Þessi yrki eru nú meðal þeirra vinsælustu í sölu og það er líka auðvelt að rækta þær.