Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
Côte d'Azur
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukjurt. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur.
Blómalitur
Bleik-fúksíu-rauðpurpuralitur með ljósari miðju.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
80-90 sm
Lýsing
Blómin eru 76-150 mm breið, bleik-fúksíu-rauðpurpuralit með ljósari miðju, og með daufan, sætan ilm. Blómin vita upp á við. Stönglar eru 80-90 sm háir.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
1, http://www.davesgarden.com, http://www.hollandbulbfarm.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum og með því að skipta laukhreistrum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.
Notkun/nytjar
Blóm góð til afskurðar.Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Jarðvegur þarf að vera frjór og vel framræstur. Gróðursetjið laukana með 20-30 sm millibili.
Reynsla
Laukar (2 stk.) voru keyptir í Lystigarðinn 1990, þessar plöntur hafa stundum rétt tórt, en báru blóm í ágúst-september 2010 og höfðu myndað nýja stöngla síðan 1990. Einn laukur til viðbótar var keyptur 2008, þrífst vel.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.