Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Lemon Pixie'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga. Ræturnar þurfa skugga.
Blómalitur
Sítrónugulur með rauðar doppur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
25-40 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Smávaxin lilja, stönglar eru uppréttir, 25-40 sm háir, með mörg glansandi dökk- til milligræn, mjó-lensulaga lauf. Blómin eru stök, ilma, eru skállaga, sítrónugul með rauðar doppur í miðjunni.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
http://www.halcyonplants.co.uk, http://www.learn2grow.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga. Lemon Pixie er harðgerð og ætti að gróðursetja í hlutlausan, vel framræstan jarðveg, leirkenndan og sendinn, sem hæfilegu magni af lífrænum efnum t.d. laufi eða lauf hefur verið blandað í. Vökvun í meðallagi. Ræturnar þurfa skugga.Plantið með 25-30 sm millibili. Góð í blönduð í fjölæringabeð, beðkanta og líka í ker. Einnig er hún góð til afskurðar. Auðræktuð, glæsileg, dugleg lítil lilja.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Allir liljublendingarnir í Pixie seríunni eru kynbættar og ræktaðar í Oregon Bulb Farms í Aurora, Oregon., USA.Asíublendingar eru líklega algengastar og auðræktaðastar af þeim lilju-blendingum sem eru í ræktun. Venjulega bera þær mörg skærlit blóm efst á sterkum stöngli. Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.