Lilium

Ættkvísl
Lilium
Yrki form
'Pink Pixie'
Íslenskt nafn
Skrautlilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Djúpbleikur með rjómalita slikju í gininu.
Blómgunartími
September.
Hæð
40-45 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Blómin eru stór og opin, djúpbleik með rjómalita slikju í gininu. Stönglarnir eru 40-45 sm háir, uppréttir, sterklegir, venjulega með mörg blóm í toppinn, Lauf glansandi græn-dökkgræn, mjó-lensulaga.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
http://www.learn2grow,http://www.answers.yahoo.com,http://www.americanmeadows.com,http://www.ces.ncsu.edu
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður, vel framræstur jarðvegur, leirborinn og sendinn, lífefnaríkur. Vökvun í meðallagi.Gróðursetjið laukana með 30-40 sm millibili. Pink Pixie' er hentug til afskurðar, en líka til ræktunar í kerum eða í blandaða beðkanta. Litfögur og auðræktuð, dugleg, smávaxin lilja.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Allir liljublendingarnir í Pixie seríunni eru kynbættar og ræktaðar í Oregon Bulb Farms í Aurora, Oregon., USA.Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem Connecticut King og þekktur rauður blendingur er Gran Paradiso. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.