Lilium bulbiferum

Ættkvísl
Lilium
Nafn
bulbiferum
Íslenskt nafn
Eldlilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður (eða í hálfskugga).
Blómalitur
Skærappelsínulit með brúnrauðar doppur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
40-15 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Stönglar 40-150 sm háir, gáróttir, grænir stöku sinnum með rauðar doppur, ullhærðir efst. Stönglar eru með stöngulrætur; grænir æxlilaukar eru í blaðöxlum. Laukar eru sammiðja, 9 sm breiðir, hreistur lensulaga, hvít. Lauf 10×2 sm, lensulaga, stakstæð, 3-7 tauga, Blóm allt að 5 stöku sinnum allt að 50, upprétt, bollalaga, blómhlífarblöð 6-8,5×2-3 sm, skær appelsínulit, grunnur og oddar dekkri á litinn, með brúnrauðar doppur á innra borði. Frjóhnappar brúnir, frjó appelsínulitt. Þrífst í vel framræstum jarðvegi.
Uppruni
S-Evrópa.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Fræ, hliðarlaukar, laukhreistur
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, trjábeð. Getur þurft uppbindingu.
Reynsla
Harðgerð jurt. Gömul planta í Lystigarðinum, frá því fyrir 1956 að öllum líkindum, blómstrar árlega og þrífst vel. Einnig er til önnur planta sem kom í Lystigarðinn 2011, úr garði á Akureyri, þrífst vel.