Lilium davidii

Ættkvísl
Lilium
Nafn
davidii
Íslenskt nafn
Davíðslilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga.
Blómalitur
Rauður, rauðgulur, doppur þéttar.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
100-140 eða allt að 180 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Þetta er fjölær villililja og laukplanta. Stönglarnir eru með stöngulrætur og eru 100-140 eða allt að 180 sm háir, stinnir, grænir, brúndoppóttir, (hjárætur birtast ofan við laukinn) dúnhærðir einkum neðantil og oftast með hæringu sem minnir á köngulóarvef í blaðöxlunum. Laukar eru sammiðja, stundum skriðulir, stundum ekki, 4×4 sm, hreistur hvít, bleik ef birtan skín á þau, egglaga eða egg-lensulaga.Laufin eru þéttstæð og stakstæð, (í rauninni skrúfustæð) 6-10 sm × 2-4 mm, bandlaga/mjólensulaga, útstæð, vita á ská upp á við eða eru lárétt. Þau eru dökkgræn, eintauga, 6-10×0,2-0,4 sm, fjölmörg, bandlaga, ydd, smátennt með hvít hár við grunninn. Miðstrengurinn ögn snarpur á neðra borði laufanna, jaðrar oftast innundnir og ögn snarpir. Blóm eru oftast 6-20, en geta verið allt að 40, túrbanlaga, ilmlaus, drúpandi, í klösum, knúbbar hærðir. Blómleggir allt að 15 sm, láréttir, stinnir. Blómhlífarblöðin eru 5-8 sm × 8-25 mm, rauð, rauðgul með þéttum doppum og með djúppurpura upphleyptar doppur nema við oddinn, vörtótt neðantil, mjög mikið aftursveigð. Hunangsgrópir bryddaðar hvítum hárum. Fræflar 9-12 mm, purpura-appelsínugulir með appelsínulitt eða skarlatsrautt frjó. Aldin 3,5×2 sm.
Uppruni
V Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1,http://www.wikipedia.org.Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. third ed. London.Walters, S.M. & al. The European Garden Flora, I, Cambridge Univ. Press 1986.
Fjölgun
Auðræktuð upp af fræi.
Notkun/nytjar
Lifir lengi í steinhæð eða í beði.
Reynsla
Var sáð í Lystigarðinum 2003 og flutt út í beð 2005, bar blóm og knúppa í ágúst-september 2010, þrífst vel.
Yrki og undirteg.
Hefur verið notuð nokkuð í kynblöndun og er foreldri af Preston og Fiesta blendingum í Kanada (Origon Bulb Farm).
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR.Laukarnir eru ætir og stundum með renglur. Þeir eru ræktaðir til matar í heimahéruðum sínum. Davíðsliljan vex villt í Sichuan og Yunnan í 1500-3000 m hæð. Nafnið L. davidii er nafn Armand David.