Lilium davidii

Ættkvísl
Lilium
Nafn
davidii
Ssp./var
v. wilmottiae
Höfundur undirteg.
(Wilson) Raffill.
Íslenskt nafn
Davíðslilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
Lilium willmottiae
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga.
Blómalitur
Appelsínulitur til rauður, doppur kastaníubrúnar.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 2 m
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Glæsilegt skriðult afbrigði. Stönglar eru grannir, allt að 2 m háir, bogsveigðir, svigna oft undan þyngd blómanna. Laukar skriðulir. Lauf stakstæð, löng og mjó, lauf sem eru þykk og allt að 12 sm löng og 6 mm breið, hárlaus. Laufin allt að 6 mm breið, standa þéttast um miðjan stöngul. Blómskipunin stór á löngum grönnum leggjum sem bera allt að 40 stór, appelsínulit til rauð, álút blóm, sem eru með kastaníubrúnar doppur og aftursveigð blómhlífarblöð með rauðum rákum. Fræflar eru útstæðir og brún-appelsínulitir.
Uppruni
V Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1,http://www.crug-farm.co.ukhttp://www.pacificbulbsociety.org.Walters, S.M. & al. The European Garden Flora, I, Cambridge Univ. Press 1986.
Fjölgun
Kemur fljótt upp að fræi og er mjög auðveld í ræktun.
Notkun/nytjar
Auðræktuð í lífefnaríkum jarðvegi á sólríkum vaxtarstað eða í hálfskugga. Bindið bambus við stöngulinn til stuðnings.
Reynsla
Var sáð í Lystigarðinum 1992 og flutt út í beð 1994, sein til, ber blóm í ágúst-september. Mjög falleg.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Hefur verið notuð nokkuð í kynblöndun og er foreldri af Preston og Fiesta blendingum í Kanada. (Origon Bulb Farm).