Lilium duchartrei

Ættkvísl
Lilium
Nafn
duchartrei
Íslenskt nafn
Dröfnulilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Skuggsæll vaxtarstaður.
Blómalitur
Hvítur, blettir rauðbrúnir.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
60-100 (150) sm
Vaxtarlag
Sveigðir stönglar, brúnskotnir, hvít hár í blaðöxlum.
Lýsing
Stönglar eru með stöngulrætur, 60-100 (150) sm, grænir með brúna slikju, gáróttur og með hvít hár í blaðöxlum, stönglar eru oft með renglur. Laukar skriðulir, 2,5-4 sm breiðir, hreistur hvít, oddbaugótt, ydd. Lauf 10,5×1,5 sm, dökkgræn ofan, fölgræn neðan, lensulaga, 3-5 tauga, stakstæð, legglaus, jaðrar snarpir. Blómin eru í sveip, ilma, eru allt að 12, túrbanlaga, drúpandi, blómleggir 7-15 sm, uppsveigðir. Blómhlífarblöð baksveigð, hvít-marmarahvít innan með djúppurpuralitum doppum, græn við grunninn, hvít með purpuraslikju að utan, verða rauð með aldrinum, Frjó appelsínulit. Aldin purpura, 2,5×1,5 sm. Fræ 1,8 sm.
Uppruni
V Kína.
Harka
5
Heimildir
= 1,Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. third ed. London.
Fjölgun
Með fræi, hliðarlaukum, laukhreistrum.
Notkun/nytjar
Í trjáa- og runnabeð, fjölæringabeð.
Reynsla
Harðgerð-meðalharðgerð planta. Er ekki í Lystigarðinum.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Sjaldan í ræktun. Þarf svala, rakan jarðveg á skuggsælum stað þar sem renglurnar geta vaxið. Vex á fjallaengjum á rökum, deigum eða blautum stöðum í 2400-3500 m hæð.