Lilium hansonii

Ættkvísl
Lilium
Nafn
hansonii
Íslenskt nafn
Hansalilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður (eða í hálfskugga).
Blómalitur
Djúp-appelsínulitur, doppur purpurabrúnar.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
90-120 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir, stinnir stönglar.
Lýsing
Kröftug lilja, villitegund sem myndar hnaus. Stönglar eru með stöngulrætur, 90-120 sm háir, grænir. Laukar 7×6 sm, skriðulir, hreistur gulhvít, purpuralit ef birta skín á þá, þríhyrndir til egglaga. Lauf 18×4 sm eru öfug-lensulaga, dökkgræn, 3-4 tauga. Lauf í þéttum krönsum. Blómskipun klasar og eru með 3-12 lítil, túrbanlaga, ilmandi, drúpandi, blóm í hverjum. Blómhlífarblöð 3-4×1,5 sm, þykk, baksveigð, djúp-appelsínulit og með purpurabrúnar doppur við grunninn. Frjóhnappar purpuralitir, frjó gult, stíll grænn. Aldin 3,5×3,5 sm þroskast sjaldan.
Uppruni
Fjöll Kóreu, A Rússland, Japan.
Harka
5
Heimildir
= 1,http://www.backyardgardener.comhttp://www.davesgarden.comhttp://www.shootgarden.co.uk
Fjölgun
Fjölgað með því að skipta laukhreistrum eða með fræi sem sáð er í potta að vetrinum og þeir geymdir í sólreit eða - í köldu gróðurhúsi.
Notkun/nytjar
Í trjáa- og runnabeð, fjölæringabeð.Sólríkur vaxtarstaður eða hálfkuggi. Vel framræstur jarðvegur. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Plantið með 30-40 sm millibili.
Reynsla
Talin harðgerð, en fremur viðkvæm fyrir vorkuldum, blómknappar eyðileggjast. Var sáð í Lystigarðinum 2000 og flutt út í sólreit 2005.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Ef safna á fræi eru hýðin látin þorna á plöntunni og síðan er fræði tekið og það geymt.