Lilium kelleyanum

Ættkvísl
Lilium
Nafn
kelleyanum
Íslenskt nafn
Fiðrildalilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Samheiti
L. nevadense Eastw., L. nevadense v. shastense Eastw., L. pardalianum Kellogg v. shastense (Eastw.) Stoker; L. shastense (Eastw.) Beane.
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Hálfskuggi undir trjám.
Blómalitur
Gulur eða appelsínulitur með rauðbrúnar eða brúnar doppur.
Blómgunartími
Ágúst- september.
Hæð
60-100 sm.
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Planta með jarðstöngla sem hafa strjál hreistur og fyrsta árs lauk á endanum. Laukurinn er aflangur, allt að 8 sm langur. Stönglar 60-100 sm, stöku sinnum allt að 200 sm háir. Laufin 5-15×1,5-3,5 sm, lensulaga til oddbaugótt, hanga niður í oddinn. stakstæð, stundum í 2 (eða fleiri) krönsum með 7-16 lauf. Blómskipunin strjálblóma klasar sem bera allt að 25 stór, túrbanlaga, ilmandi, drúpandi blóm. Blómin eru bjöllulaga með 6 blómhlífarblöð. Þau eru 2,5-5(6)×1 sm, baksveigð, gul eða appelsínulit, með rauðbrúnar eða brúnar doppur við grunninn, oddurinn er stundum rauður-rauðleitur. Fræflarnir eru 6 og með rauða frjóhnappa. Frævan getur verið meira en 3 sm löng.
Uppruni
Kalifornía.
Harka
5
Heimildir
= 1, Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. third ed. London. http://www.wikipedia.org
Fjölgun
Með fræi, eða með því að skipta laukhreistrum og með hliðarlaukum.
Notkun/nytjar
Þetta er liljutegund sem er erfitt að rækta.
Reynsla
Var sáð í Lystigarðinum 2002 og flutt út í beð 2004, engin blóm 2010 og aðeins einn stöngull.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:L. kelleyanum er endemísk/einlend í Sierra Nevada í Kaliforníu, vex þar í raklendi í skógum svo sem meðfram lækjum.