Lilium lophophorum

Ættkvísl
Lilium
Nafn
lophophorum
Íslenskt nafn
Sítrónulilja*
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Fjölæringur og laukplanta.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Gulur, fölgulur eða fölgulgrænn með purpurarauðar doppur.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
15-20 sm
Vaxtarlag
Falleg dvergvaxin lilja sem ætti að vera betur þekkt, ekki síst vegna sterks en létts sítrónuilms.
Lýsing
Stönglar stuttir, aðeins 15-20 sm há. Með allt of stór sítrónugul blóm, hvert með löng snúin blómhlífarblöð sem eru föst saman i oddinn í byrjun. Lifir í svölu loftslagi í rakri mómold en samt með góða framræslu. Laukar hálfegglaga, 1,5-3,5 sm í þvermál, hreistur fremur gisin, hvít, lensulaga 3,5-4×0,6-0,7 sm. Stönglar 10-45 sm háir. Lauf mjög breytileg, þétt saman eða stakstæð, bandlaga, mjólenslaga, lensulaga eða aflöng-lensulaga, 5-12×0,3-2 sm, jaðrar vörtóttir. Stoðblöð 5-13×0,3-1,0 sm. Blóm oftast stök, stöku sinnum 2-3, álút. Blómhlífarblöð gul, fölgul eða fölgulgræn með purpurarauðar doppur eða ekki með doppur, lensulaga eða mjóegglensulaga 4,5-5,7×0,9-1,6 sm innri blómhlífarblöðin randhærð báðum megin á hunangskirtlunum. Fræflar samluktir, 1,5-2 sm, frjóþræðir hárlausir. Frjóhnappar 7-10 mm. Egglaga 1-1,2×0,3-0,4 sm. Stíll um 1 sm, fræhulstur 2-3×1,5-2 sm.
Uppruni
Kína.
Heimildir
= eFlora of China, http://www.rareplants.co.uk
Fjölgun
Með fræi.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð. Þarf sólríkan vaxtarstað.
Reynsla
Var sáð í Lystigarðinum 1990 og flutt út í beð 2004, dauð, var sáð aftur í Lystigarðinum 2003 og flutt út í sólreit 2005, og enn var sáð 2007 og flutt í beð 2010.
Yrki og undirteg.
v. lophophorum ---- Lauf mjólensulaga, lensulaga eða aflöng-lensulaga, blómhlífarblöð með mjög lítið af purpurarauðum doppum eða doppulaus.v. linearifolium (Sealy) S. Yun Liang ---- Lauf bandlaga, blómhlífarblöð greinilega doppótt. Auðræktuð en lengi að þroskast frá fræi og því miður spíra fræin inni í grænu fræhulstrinu t.d. á Bretlandseyjum.
Útbreiðsla
Vex í skógum, brekkum og graslendi til fjalla í 2500-4500 m h.y.s. Kína (Sichuan, Xizang, Yunnan).