Lonicera albertii

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
albertii
Íslenskt nafn
Bertatoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Bleik-lilla.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
-1,2 m
Vaxtarlag
Lágvaxinn lauffellandi runni allt að 1,2 m hár, hálfuppréttur.
Lýsing
Ungar smágreinar grannar, hárlausar eða kirtilhærðar. Lauf allt að 3 × 0,3 sm, bandlaga-aflöng, legglaus, oddlaus, oft með fáeinar tennur við grunninn, blágræn, hárlaus ofan, hvít neðan, laufleggir mjög stuttir Blómin bleik-lilla, ilmandi, 2 sm í þvermál, tvö og tvö saman í blaðöxlunum, blómleggir 6,5 mm, krónupípan sívöl, allt að 12,5 mm, grannar, dúnhærðar innan, hárlausar á ytra borði. flipar útstæðir, aflangir, frjóþræðir allt að 2 sinnum lengri en frjóhnapparnir. Berin 8,5 mm í þvermál, dumbrauð til hvít-hrímug, ekki samvaxin.
Uppruni
Túrkestan, Tíbet.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Græðlingar, sánimg.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1992 og gróðursett í beð 2004