Lonicera × bella

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
× bella
Íslenskt nafn
Fagurtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae)
Samheiti
L. morrowii × L. tatarica
Lífsform
Lauffellandi runni, fremur stór
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Gulhvítur
Blómgunartími
Sumar
Hæð
3-4 (-6m)
Vaxtarlag
Runni sem er millistig milli foreldranna. Uppréttur, lauffellandi runni.
Lýsing
Lauf allt að 5 sm, egglaga, hvassydd, verða fljótt hárlaus. Blómin með rauðari blóm en foreldrarnir, seinna gul, tvö og tvö saman. Krónan 12,5 mm, með tvær varir. Berin rauð.
Uppruni
Garðablendingur
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í kanta, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1989 og gróðursettar í beð 1992 og 1994. Þrífst vel, kelur lítið.
Yrki og undirteg.
'Chrysantha' Blómin gul. 'Dropmore' með drúpandi greinar, allt að 2 m hár,.blómin hvít, seinna gul, fjölmörg.'Incarnata' Blómin rauð. 'Polyantha' Blómin rauðbleik, mörg.