Lonicera × bella

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
× bella
Yrki form
Rosea
Íslenskt nafn
Fagurtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikur, verður hvítur seinna gulur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
- 3 m
Vaxtarlag
Kröftugur, lauffellandi runni, allt að 3 m hár.
Lýsing
Lauf allt að 4 × 2,5 sm, egglaga, ögn hjartalaga við grunninn, grágræn, laufleggur stuttur. Blómin 18 mm í þvermái, tvö og tvö saman, mörg saman á sprotaendunum. Krónan með tvær varir. ---Blómin bleik, gulna seinna, ilmandi.
Uppruni
Yrki.
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í þyrpingar, í kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1975 og gróðursett í beð 1979, þrífst vel, kelur lítið.