Lonicera caerulea

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
caerulea
Ssp./var
ssp. stenantha
Höfundur undirteg.
(Pojark.) Hulten ex Skvortsov is
Íslenskt nafn
Blátoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Samheiti
Lonicera stenantha Pojark
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
1,5-2 m
Vaxtarlag
Uppréttur runni allt að 2 m hár, hárlaus til meira eða minna hærður.
Lýsing
Laufin allt að 7 × 3 sm, oddbaugótt eða egglaga-aflöng, hvassydd eða næstum ydd, fleyglaga eða bogadregin við grunninn. Blómin hálfóregluleg, tvö og tvö saman á 7-10 mm löngum axlastæðum blómleggjum. Stoðblöðin bandlaga, lengri en smástoðblöðin. Smástoðblöðin samvaxin, minna á bolla, lykja um egglegin. Bikarflipar eru bylgjaðir, langhærðir. Krónan er gul, allt að 16 mm löng, trektlaga, grunnur hliðskakkur, flipar mislangir. Berin samvaxin, safamikil, dökkblá.
Uppruni
Himalaja.
Heimildir
Flora of Pakistan www.eFloras.org
Fjölgun
Sáning, vetrar- eða sumargræðlinar.
Notkun/nytjar
Í klippt eða óklippt limgerði, í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum var sáð til þessarar tegundar 2008, óvíst hvort lifi 2012.