Lonicera ciliosa

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
ciliosa
Íslenskt nafn
Tvinnatoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Sígrænn vafningsrunni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur til appelsínuskarlatsrauður.
Blómgunartími
Sumar.
Vaxtarlag
Sígrænn vafningsrunni.
Lýsing
Laufin allt að 10 sm egglaga eða oddbaugótt, grunnur langyddur, randhærður, blágræn, og bláleit neðan, endablaðparið er samvaxið og myndar ydda, oddbaugótta skífu, laufleggir allt að 12,5 mm. Blóm allt að 4 sm, gul til appelsínu-skarlatsrauð dúnhærð á ytraborði. Í endastæðum 1-3 kransa axi. Krónan með tvær varir, sem er meira áberandi en hjá L. sempervirens, útblásin við grunninn. Berin 5 mm í þvermál, rauð.
Uppruni
N Ameríka
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Á grindur við veggi, á girðingar.
Reynsla
Engin enn sem komið er, var sáð í Lystigarðinum 2006.
Yrki og undirteg.
v.. occidentalis (Hook.) Nichols. Blómin ögn stærri, krónupípa hárlaus, dökk-appelsínugul á ytra borði.