Lonicera conjugalis*

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
conjugalis*
Íslenskt nafn
Hjónatoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Dauf purpuralitur.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
- 1,5 m
Vaxtarlag
Útafliggjandi, lauffellandi runni, allt að 1,5 m hár, mikið greindur.
Lýsing
Stönglar grannir, smágreinar snarphærðar. Lauf allt að 4 sm, aflöng-egglaga til aflöng-öfugegglaga,.ydd, mjó, fölgræn og næstum hárlaus ofan, ljósari og dúnhærð neðan, randhærð, laufleggir allt að 2 mm. Blóm dauf purpura, tvö og tvö saman, axlastæð, um miðjar greinar og ofar á þeim, blómleggir allt að 2,5 sm langir. grannir. Axlablöð örsmá eða engin. Bikartennur mjög rýrar. Króna allt að 8 mm, með tvær varir, hvítdúnhærð. Berin allt að 6 mm, skærrauð.
Uppruni
Kalifornía
Harka
8
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð.
Reynsla
Ekki til í Lystigarðinum, en var sáð þar 2000.