Lonicera demissa*

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
demissa*
Íslenskt nafn
Hverfitoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Fölgulur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
2-4 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni allt að 4 m hár, mikið greindur.
Lýsing
Börkur grár, flagnar, ungar greinar dökkpurpura, uppsveigðar, með stutt, bein hár. Lauf allt að 3,5 × 1,25 sm, breið-öfuglensulaga til mjó-öfugegglaga, stöku sinnum mjó-aflöng, snubbótt, grunnur yddur, dúnhærð og næstum bláleit neðan. Laufleggur mjög stuttur. Blóm fölgul, tvö og tvö saman, blómleggur 1,5 sm, grannur. Stoðblöð himnukennd, bandlaga, smástoðblöð næstum kringlótt, krónupípa örlítið kirtil-doppótt. Bikarblöð stutt, snubbótt. Krónan með tvær varir, hliðskökk, allt að 13 mm, stutt-dúnhærð utan, hliðskökk, eggleg kirtildúnhærð. Berin 6 × 8 mm, hnöttótt, dökkrautt, gljáandi. Fræ allt að 3 × 2 mm, kúlu- egglaga, rauð.
Uppruni
Japan
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, stakstæður.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1989 og gróðursett í beð 1993 og ein planta sem sáð var til 1001 og gróðursett í beð 2001, báðar kala dálítið.