Lonicera dioica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
dioica
Íslenskt nafn
Grátoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni eða vafningsrunni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulgrænn með rauða slikju.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
1,5 m
Vaxtarlag
Útstæður runni eða vafningsrunni, lauffellandi, allt að 1,5 m hár.
Lýsing
Ungar greinar hárlausar. Lauf allt að 9 × 5 sm, oddbaugótt eða aflöng, langydd bæði í grunn og odd, hárlaus ung, áberandi bláleit neðan, efri grunlaufin samvaxin í skífu. Blómin gul-græn, með rauða slikju. Blómhnoðu 5 sm, ???? í endastæðum kolli. Króna með tvær varir, hliðskökk, hárlaus utan, stíll oftast hárlaus. Berin rauð.
Uppruni
N Ameríka.
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1998 og gróðursett í beð 2006.