Lonicera ledebourii

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
ledebourii
Íslenskt nafn
Glæsitoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Djúp appelsínugulur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
1.5-2m
Vaxtarlag
Flottur, sterklegur, uppréttur runni, allt að 2 m á hæð. Ungir sprotar sterklegir, hárlausir, sjaldan dúnhærðir.
Lýsing
Lauf allt að 12 × 4,5 sm, egglaga-aflöng, odddregin eða bogadregin við grunninn, matt-dökkgræn ofan, ljósari og ullhærð neðan. Jaðrar dúnhærðir, laufleggur 6,5 mm langir, blómin djúpappelsínugul, allt að 2 sm. með 2-4 purpura menguð og kirtilhærð, hjartalaga stoðblöð. Blómleggir uppréttir, allt að 4 sm, krónan trektlaga, með límkennda dúnhæringu á ytra borði. Berin svört, umlukin langæjum, rauðum stoðblöðum.
Uppruni
V Bandaríkin
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í limgerði, klippt eða óklippt, í blönduð beð, í þyrpingar eða sem stakstæðir runnar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur, sem sáð var til 1993 og gróðursettar í beð 2004. Þrífst vel, kelur lítið sem ekkert. Harðger og nokkuð saltþolinn.