Lonicera maximowicii

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
maximowicii
Íslenskt nafn
Purpuratoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Purpurarauður.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 3 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Ungir sprotar purpuramengaðir, hárlausir eða dálítið þornhærðir.
Lýsing
Lauf allt að 11,5 × 5,5 sm, breið-oddbaugótt, dökkgræn og hárlaus ofan, lítið eitt dúnhærð neðan. Blómin purpurarauð, 1 sm, hárlaus utan, tvö og tvö saman, blómleggur 2 sm, hárlausir. Krónan með tvær varir, krónupípan stækkuð við grunninn, Berin eggvala, rauð, samvaxin.
Uppruni
Manchuria (Amúrland), Kórea, Kína.
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
í limgerði, blönduð beð, sem stakstæðir runnar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta, sem sáð var til 1979 og gróðursett í beð 1984. Þrífst vel, keldur dálítið.