Lonicera myrtillus

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
myrtillus
Íslenskt nafn
Bjöllutoppur (myrtutoppur)
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Gulhvítur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
-1 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 1 m hár, þéttur, kúlulaga. Greinar stinnar, ungar greinar dúnhærðar.
Lýsing
Lauf oddbaugótt eða egglaga, allt að 2,5 × 6,5 sm, hárlaus, dökkgræn ofan ljósari og bláleit neðan, jaðrar baksveigðir, Blómin tvö og tvö saman, á stuttum leggjum, ilmandi, gulhvít. Króna pípu- til bjöllulaga, allt að 8 mm, hárlaus. Stoðblöð mjó-aflöng, eggleg samvaxin, 2-, sjaldan 6-hólfa. Berin 6,5 mm í þvermál, appelsínurauð.
Uppruni
Himalaja, Afganistan.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Fremst í blönduð trjábeð.
Reynsla
Aðaltegundinm er ekki í Lystigarðinum.