Lonicera nevrosa

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
nevrosa
Íslenskt nafn
Strengjatoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Fölbleikur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 3 m
Vaxtarlag
Uppréttur lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Ungir sprotar hárlausir, útstæðir, með purpura slikju.
Lýsing
Lauf allt að 6 × 2,5 sm, oddbaugótt eða aflöng, ydd eða odddregin í báða enda, hárlaus, rauð í fyrstu, seinna skærgræn ofan nema á æðastrengjunum, sem haldast rauðir áfram. Laufleggir allt að 4 mm. Stoðblöðin samvaxin í bikar. Blómin fölbleik, tvö og tvö saman. Króna 1 sm, stíll dúnhærður upp í topp. Berin svört, ekki samvaxin.
Uppruni
Kína.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlinar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
í beð, þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta, sem var sáð til 1985 og gróðursett í beð 1990. Þrífst vel.