Lonicera × salicifolia

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
× salicifolia
Íslenskt nafn
Víðitoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur eða rjómalitur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
3-3,6 m
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Lauffellandi, kúlulaga runni, 3-3,6 m hár og 3-3,6 m breiður, með heil lauf.
Lýsing
Laufin eru stakstæð á greinunum, milligræn og egglaga, heilrend. Blómin eru trektlag,hvít eða rjómagul. Blómin mynda koll. Blómin mynda koll. Berin appelsínugul.
Uppruni
Garðablendingur.
Heimildir
http://en.hortipedia.com, http://www.horticopia.com
Fjölgun
Fjölgað með sáningu í sólreit jafn skjótt og fræin hafa þroskast eða með því að taka græðlinga að vorinu.
Notkun/nytjar
Í kanta, limgerði eða sem stakir runnar. --- Lonicera × salicifolia þrífst best á sólríkum eða hálf skuggsælum vaxtarstað og þolir hitastig niður í -34,4°C. Vex best í sendnum eða malarbornum leirkenndur jarðvegi, sem er meðalrakur til rakur. ---- Klippið sprota sem hafa blómstrað niður að kröftugu brumi eða heilbrigðum greinum að blómgun lokinni. Á gömlum plöntum greinarnar klipptar niður svo að ¼ verði eftir ofan við grunninn .
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1979 og gróðursett í beð 1985, sem þrífst vel og kelur mjög lítið.