Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítgulur til skærrauður.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
2-4 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir.
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Króna allt að 2,5 sm, hvít til skærrauð. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul.
Uppruni
S Rússland, til M Asíu.
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í óhlippt limgerði, í þyrpingar, sem stakstæður runni, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni og níu plöntur sem sáð var til 1979, gróðursettar í beð 1984 sem og ein planta sem sáð var til 1983 og gróðursett í beð 1984. Allar þrífast vel, en kala dálítið árlega. -----Harðgerður runni og nokkuð vindÞolinn, þarf reglulega snyrtingu. Laufgast snemma á vorin eins og flestir toppar og hættir því við skemmdum í vorfrostum.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki í ræktun t.d. má nefna, 'Arnold's Red' með dökkrauð blóm og ber, Fenzlii Laufin gulrákótt og gulflikrótt, 'Latifolia' með sverar og steklegar greinar, stór blöð, ljósbleik blóm og rauð ber, 'Virginalis' með hvít blóm og appelsínugul ber.