Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Yrki form
Morden Orange
Íslenskt nafn
Rauðtoppur.
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Ljósbleikur.
Blómgunartími
Vor-hálfskuggi.
Hæð
- 4 m
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt. Blómin ljósbleik, berin appelsínugul
Uppruni
Yrki.
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í limgerði, í þyrpingar, í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta, mjög falleg, þrífst vel, kelur lítið.