Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Ssp./var
v. leroyana
Höfundur undirteg.
(Zab.) Rehd.
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Samheiti
L. tatarica v. xanthocarpa Endl.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Milli-purpurableikur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 2-3 m
Vaxtarlag
Lágvaxinn, þéttur, lauffellandi runni.
Lýsing
Laufin aflöng-lensulaga, allt að 7 sm löng, bogadregin við grunninn, randhærð. Blómin sjaldséð, eru 35 sm í þvermál, milli-purpurableik með hvíta krónublómajaðra. Blómstrar treglega og er lítt eftirtektarverð hvað blómgun viðvíkur.
Uppruni
S Rússland til M Asíu.
Heimildir
21,http://arnoldia.arboretum.harvard.edu
Fjölgun
Sáning, vetrar- eða sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í Limgerði, í kanta, í trjá- og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul, aðkeypt planta undir þessu nafni, gróðursett í beð 1985, þrífst vel. kelur lítið.