Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Ssp./var
v. pallens
Höfundur undirteg.
Rehd.
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Fölbleikur til næstum hvítur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 4 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
Lýsing
Laufin lítil og mjó, fölblágræn. Blómin bleikleit, verða næstum hvít.
Uppruni
Turkestan.
Heimildir
21
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í kanta, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 2002, þrífst vel, kelur sjaldan.