Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Yrki form
'Zabelii'
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Blómin skærbleik
Uppruni
Yrki.
Harka
3
Heimildir
1,7
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sveigræðsla.
Notkun/nytjar
Í klippt eða óklippt limgerði, í blöndurð trjá og runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur undir þessu nafni, eim sem sáð var 1984 og gróðursett í beð 1988, tvær sem sáð var til 1991 og gróðursettar í beð 1999 og 2000 og tvær sem sáð var til 1992 og gróðursettar í beð 2002 og 2009. Allar þrífast sæmilega en kala ögn flest ár.