Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Yrki form
Alborosea
Höf.
(Späth 1880)
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Ljósbleikur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 4 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Blómin ljósbleik, stór.
Uppruni
Yrki
Heimildir
1, 7
Fjölgun
Vetrar- og sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í klippt eða óklippt limgerði, í þyrpingar, í blönduð runna og trjábeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem gróðursett var í beð 1980, vex vel, kelur lítið sem ekkert.