Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Yrki form
Hacks Red
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Bleikrauður.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 4 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Blómin bleikrauð.
Uppruni
Yrki.
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í limgerði, trjá- og runnabeð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, sem þrífst vel, kelur dálítið.