Lonicera tatsiensis

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatsiensis
Íslenskt nafn
Bleðlatoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Djúp purpura.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 2 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 2 m hár. Smágreinar hárlausar.
Lýsing
Lauf allt að 4 sm, egglaga til aflöng-egglaga, odddregin, mjúkhærð, einkum á neðra borði, heilrend, sjaldan djúpflipótt. Blómin tvö og tvö saman í blaðöxlunum. Blómleggir allt að 3 sm, hárlausir. Krónan allt að 1,2 sm, með tvær varir, djúp purpura, mjúkhærð við grunninn. Frjóhnappar ná ekki út úr blóminu. Still mjúkhærður. Berin samvaxin.
Uppruni
Tíbet.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, vetrar- eða sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í kanta, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1979 og gróðursettar í beð 1984, þrífst vel, kelur lítið.