Lonicera trichosantha

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
trichosantha
Íslenskt nafn
Hrístoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur eða hvítur, verður gulur með aldrinum.
Blómgunartími
Sumar.
Hæð
1,5-3 m
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur, útbreiddur runni, allt að 1,5 m hár. Smágreinar grannar, næstum hárlaus.
Lýsing
Laufin 2,5-4 sm, breið-egglaga, snubbótt, broddydd. Bogadregin til hálfhjartalaga við grunninn, mjúkhærð, einkum á æðastrengjum á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman í blaðöxlunum. Blómleggir 0,3-1 sm, bikar bjöllulaga, þverstýfður eða ógreinilega flipóttir. Króna 1,8-2 sm, með tvær varir, dúnhærð utan, gul eða hvít, verður gul, krónupípan stutt, hliðskökk við grunninn. Stíll mjúkhærður. Berin skærrauð, fræ 2-4 mm, gulbrún.
Uppruni
Tíbet, V Kína.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í þyrpingar, í kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1992 og gróðursett í beð 2000 og tvær plöntur sem sáð var til 1994 og gróðursettar í beð 2004 og 2009. þrífast sæmilega, kala nokkuð.