Lonicera villosa

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
villosa
Íslenskt nafn
Loðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
0,5-1m
Vaxtarlag
Runni náskyldur blátopp (L. caerulea). Lauffellandi runni, ungir sprotar lóhærðir, greinar útstæðar með 45° horni.
Lýsing
Lauf lang-hrokkinhærð bæði ofan og neðan. Krónan trektlaga, pípan lengri en krónutungan, langhærð utan. Aldin blá, æt.
Uppruni
N Ameríka
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, sumar- og vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1982 og gróðursettar í beð 1988 og ein planta sem sáð var til 1983 og gróðursett í beð 1988. Þrífast vel, kala mjög lítið.