Luzula maxima

Ættkvísl
Luzula
Nafn
maxima
Íslenskt nafn
Lundahæra
Ætt
Sefætt (Juncaceae).
Samheiti
Réttara: Luzula sylvatica (Huds.) Gaud.
Lífsform
Fjölær, grasleit tegund.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Lausþýfð, grasleit tegund, allt að 80 sm há, myndar háa brúska.
Lýsing
Grunnlauf allt að 30 x 2 sm, með rennu, með fá eða mörg silkihár. Blómskipunin útstæð með mörg blóm í 2-3 blóma hnoðum, smástoðblöð tannflipótt til kögruð. Blómhlífarblöð allt að 4 mm, brún, innri blómhlífarblöðin lengri en þau ytri, frjóhnappar allt að 6 x lengd frjóþráðanna. Hýði allt að 4,4 mm, blómhlífarblöð egglaga, fræ allt að 2 mm, gljáandi.
Uppruni
S, V & M Evrópa.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð, í blómaengi, við tjarnir og læki.
Reynsla
Harðgerð en lítt reynd hérlendis.
Yrki og undirteg.
'Aurea' - er með breið lauf, gullingul. 'Marginata' er með gulhvítar blaðrendur.