Lysimachia nummularia

Ættkvísl
Lysimachia
Nafn
nummularia
Íslenskt nafn
Skildingablóm
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær, sígræn.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarhraði
Meðalhraður.
Vaxtarlag
Sígræn hárlaus jurt, stönglar allt að 50 sm langir, jarðlægir, skríða hratt, skjóta rótum á stöngulliðunum.
Lýsing
Laufin gagnstæð, allt að 20-25 mm, standa þétt saman breiðegglaga til næstum kringlótt, snubbótt, grunnur bogadreginn eða hjartalaga, leggstutt, kirtildoppótt. Blómin stök, sjaldan tvö saman, í blaðöxlum á miðjum legg, blómleggir stinnir, miklu styttri en eða lengri en laufið sem blómið stendur við. Bikar allt að 1 sm, flipar egglaga, langyddir. Krónan allt að 2 sm í þvermál, gul, flipar öfugegglaga, smá-kirtildúnhærð, doppótt með örsmáum, svörtum kirtlum. Aldin allt að 5 mm, hnöttótt, myndast sjaldan þar sem loftslagið er svalt.
Uppruni
Evrópa, M Rússland
Sjúkdómar
Engir.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti sáning að hausti.
Notkun/nytjar
Í hengipotta, í svalakassa, sem undirgróður, í skrautblómabeð, við tjarnir.
Reynsla
Er fremur viðkvæmt, þarf að vökva í þurrkatíð, þarf helst skýlingu úti í garði yfir veturinn.
Yrki og undirteg.
'Aurea' er með gullið lauf.