Malus fusca

Ættkvísl
Malus
Nafn
fusca
Íslenskt nafn
Alaskaepli
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða tré.
Kjörlendi
sól (getur vaxið í dálitlum skugga.)
Blómalitur
bleik-hvítur.
Blómgunartími
vor-snemmsumars.
Hæð
7-10 m erlendis.
Vaxtarlag
Runni eða lágvaxið tré.
Lýsing
Runni allt að 7 m hár eða tré allt að 10 m hátt, Ársprotar dúnhærðir í fyrstu. Lauf 3-10 sm, lang-oddbaugótt ydd eða odddregin, djúpsagtennt, venjulega 3-flipótt, að minnsta kosti á grófum greinum. Lauf fölgrænt bæði ofan og neðan, dúnhærð í fyrstu en verða hárlaus. Blóm 6-12 í klasa, bleik-hvít, standa stutt. Blómleggir grannir, dúnhærðir. Aldin 1 sm, sporvala, gul eða rauð, enginn bikar.
Uppruni
V Bandaríkin.
Sjúkdómar
Mikil mótstaða gegn sjúkdómum.
Harka
Z6
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning. Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, sem stakir runnar eða tré eða í blandað limgerði.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta aðfengin planta sem gróðursett í beð 1979. Hefur kalið ögn af og til gegnum árin. Hefur blómstrað frá 2005.