Malus prunifolia

Ættkvísl
Malus
Nafn
prunifolia
Íslenskt nafn
Asíuepli
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor-snemmsumars.
Hæð
- 10 m erlendis.
Vaxtarlag
Lítið tré.
Lýsing
Lítið tré allt að 10 m hátt, ársprotar ögn dúnhærðir í fyrstu. Lauf 5-10 sm, oddbaugótt eða egglaga, jaðrar bogtenntir. Lauf ögn dúnhærð á neðra borði. Blóm 3 sm í þvermál, í 6-10 blóma klösum, blómin bleik í knúbbinn, en hvít þegar þau springa út. Bikarflipar, lensulaga, hvítflókahærð, langæir. Aldin mörg, 2 sm, gulgræn, til rauð.
Uppruni
Uppruni óþekktur (NA Asía).
Harka
Z3
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning. -- Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í blandað limgerðí, stök. -- Tegundin hefur lítillega verið notuð til vixlfrjóvgunar hjá ræktuðum matareplum. Mikil mótstaða gegn frosti og þurrki.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1979 og gróðursettar í beð 1988 og 1991. Þær hafa kalið ögn gegnum árin og sú sem var gróðursett í beð 1988 hefur blómstrað síðan 2009. Auk þess er til ein planta sem sáð var til 2009, er í uppeldi 2011.
Yrki og undirteg.
Yrkið Hyslop er með æt epli sem eru 4 sm í þvermál.