Malus toringoides

Ættkvísl
Malus
Nafn
toringoides
Íslenskt nafn
Roðaepli
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða tré.
Kjörlendi
Sól (síður hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 8 m erlendis.
Vaxtarlag
Uppréttur runni eða lítið tré.
Lýsing
Lauffellandi runni eða lítið tré allt að 8 m hátt, ársprotar verða fljótt hárlausir. Lauf 3-8 sm, egglaga og með bogtennta flipa eða heilrend og oddbaugótt, (hið síðarnefnda er sjaldgæfara og sjaldnar framleitt), hárlaus nema dúnhærð á æðastrengjunum á neðra borði. Blóm 2 sm breið, 3-6 saman, hvít, blómleggir engir, bikar flókahærður. Aldin fjölmörg, 1-5 sm, hnöttótt eða perulaga, gul með rauðri slikju. Eru á trénu fram eftir vetri. Blómin eru tvíkynja, skordýrafrævun.
Uppruni
V Kína.
Harka
Z5
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning. --- Fræi er best að sá að haustinu um leið og það er þroskað, geymið sáninguna í sólreit, það spírar oftast síðvetrar. Fræ sem hefur verið geymt þarf það að fá kuldameðferð í rökum mosa eða sandi í 3 mánuði við um 1°C og það ætti að sá því í sólreit strax við fáum fræðið í hendur. Það er óvíst að það spíri fyrr en eftir 12 mánuði eða meir. Dreifplantið hverri kímplöntu í sér pott strax og þær eru orðnar nógu stórar til að handfjatla. Plönturnar eru hafðar í pottum í sólreit þangað til síðla vors næsta ár, gróðursettar í beð þegar þær eru orðnar nógu stórar, skýlt fyrstu árin.
Notkun/nytjar
Skógarjaðrar, í raðir, blandað limgerði.
Reynsla
Reynsla er engin í Lystigarðinum, sáð 2011.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Mjög skrautleg planta. Aldin, ef þau þroskast hérlendis, eru góð sem fóður handa fuglum. Roðaepli (M. toringoides) er náskylt M. transitoria. Malus-tegundir mynda mikið af blendingum innbyrðis. --- Aldin æt, hrá eða soðin. Myndar mikið af aldinum og hangir á trjánum langt fram eftir vetri. Bragðið batnar ef þau hafa frosið svo best er að draga að safna uppskerunni í lengstu lög.