Malus × zumi

Ættkvísl
Malus
Nafn
× zumi
Íslenskt nafn
Skrautepli
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
M. baccata. (L.) Borkh. v. mandshurica (Maxim.) Schneid. × M. sieboldii (Reg.) Rehd.
Lífsform
Lauffellandi tré.
Kjörlendi
Full sól.
Blómalitur
Bleikur verður hvítur.
Blómgunartími
Vor-snemmsumars.
Hæð
- 6-7,6 m erlendis.
Vaxtarhraði
Meðalvaxtarhraði.
Vaxtarlag
Lítið pýramídalaga tré, útbreitt í vextinum.
Lýsing
Lítið pýramídalaga tré, ársprotar ögn dúnhærðir. Lauf 5-9 sm, egglaga, langydd, jaðrar bogtenntir til sepóttir á grófum greinum, dúnhærð neðan í fyrstu. Blóm 3 sm í þvermál, bleik í knúbbinn en lýsast og verða hvít, ilma. Blómin mynda frjóduft í svo miklum mæli að þessu tré er oft plantað til að fræva önnur tré. Bikar langhærður utan, krónublöð oddbaugótt, stílar 4-5. Aldin 1 sm, hnöttótt, rauð.
Uppruni
Japan
Harka
Z5
Heimildir
1, http://www.learn2grow
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, blönduð limgerði. stök. Meðalvökvun. --Aldinin eru notuð í matseld.Fuglar éta þau líka, tína allt af trjánum yfir veturinn.Tréð þarf löng kuldatímabil að vetrinum til að blómstra mikið að vorinu.-- Fallegt allan ársins hring.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 2001 og gróðursettar í beð 2003. -------------Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur.