Matteuccia struthiopteris

Ættkvísl
Matteuccia
Nafn
struthiopteris
Íslenskt nafn
Körfuburkni
Ætt
Tófugrasaætt (Polypodiaceae).
Lífsform
Burkni, fjölær.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Dökkbrúnn.
Blómgunartími
Gróin þroskast frá ágúst til október.
Hæð
80-100 sm
Vaxtarlag
Jarðstöngull með langa neðarjarðar jarðrenglur.Líkur Stóraburkna, blöð mynda trekt eða körfu.
Lýsing
Grólaus blöð allt að 170 x 35 sm, jurtkennd, laufleggurinn mjög stuttur með stór, lensulaga hreistur við grunninn, ljós ofantil, blaðka, allt að 130 x 40 sm, breið-lensulaga, fjaðurskipt, mjúk, skærgræn, smáblöð 30-70, stakstæð, mjólensulaga, fjaðurskert. Gróblöð allt að 60 x 6 sm, langæ, verða dökkbrún, blaðka allt að 25 x 8 sm, öfuglensulaga, fjöðruð, ólífugræn, smáblöð allt að 6 sm, bandlaga, snubbótt, hálfsívöl vegna innundinna jaðra, gróhula bollalaga, þunn, skammæ.
Uppruni
Evrópa, A Asía, A N Ameríka
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning gróa.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, sem stakstæð planta, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Harðgerð planta, hefur lifað lengi og reynst vel í Lystigarðinum.