Mimulus luteus

Ættkvísl
Mimulus
Nafn
luteus
Íslenskt nafn
Tígurtrúður
Ætt
Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur/rauð-rauðbrúnir flekki.
Blómgunartími
Ágúst.
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, venjulega ekki með greinilegan jarðstöngul, hárlaus, Stönglar 10-30 sm, jarðlægir eða útafliggjandi til sjaldan uppsveigðir, kröftugir, holir, stundum kirtilhærðir en ekki límkenndur, myndar rætur á neðstu liðunum.
Lýsing
Lauf 2-3 sm, mörg, breið egglaga til aflöng, tennt, æðar 5-7, handskiptar. Bikar 5-hyrndur, 5-tennt. Króna 2-5 sm, gul með djúprauðar eða purura doppur.
Uppruni
Chile.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning, græðlingar að vori.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, sem undirgróður.
Reynsla
Viðkvæm-meðalharðgerð, mjög breytileg tegund sem hefur kynblandast, skammlíf.
Yrki og undirteg.
'Tigrinus Grandiflorus' er sennilega þekktasta yrkið/sortin og hefur hún verið lengi í ræktun. 'Calypso' er ný og óreynd sort.