Myosotis alpestris

Ættkvísl
Myosotis
Nafn
alpestris
Íslenskt nafn
Bergmunablóm
Ætt
Munablómaætt (Boraginaceae).
Samheiti
M. sylvatica Hoffm. sp. alpestris (F.W.Schmidt) Grams, M. rupicola Smith.
Lífsform
Fjölær jurt, skammlíf.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærblár til djúpblár.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-25 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, sem myndar hnaus eða brúsk, breiðir úr sér með stuttum jarðstönglum. Stönglar eru greinóttir eða ógreindir, 5-35 sm með gróf hár, stöku sinnum hárlausar neðst, útstæð eða aðlæg hár ofantil. Lauf græn, grunnlauf aflöng-lensulaga til spaðalaga, um 8 x 1,5 sm, legglaus eða með legg, leggir lítið eða þétt dúnhærðir, stundum hárlausir neðst.
Lýsing
Blómleggir 1-2 mm, allt að 5 mm við aldinþroskann. Bikar 3-5 mm, stækkar oft í 7 mm við aldinþroskann, með þétt, aðlæg hár, stundum með krókbogin þornhár sem haldast. Krónan ilmandi, skær- til djúpblá með gult auga, 6-9 mm í þvermál. Krónupípan um 2 mm, flipar bogadregnir og útstæðir, ekki sýldir. Smáhnetur 2-2,5 x 1,4-1,7 mm, dökkbrúnar til svartar, egglaga til sporvala, snubbóttar, hver með hring nálægt toppinum og lítt þroskaðar hliðargrópir.
Uppruni
Evrópa, n Ameríka.
Harka
4
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Auðveldast er að fjölga bergmunablóminu með sáningu að vori.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í hleðslur.
Reynsla
Líkist garðmunablómi, en er lægra með stinnari blöð og styttri blómstilka (styttri en bikarinn sbr. hér að ofan).