Myosotis australis

Ættkvísl
Myosotis
Nafn
australis
Íslenskt nafn
Gullmunablóm
Ætt
Munablómaætt (Boraginaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur - gulur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt. Stönglar greinas við grunninn, greinar allt að 30 sm, fáar eða margar, uppréttar eða uppsveigðar. Grunnlauf allt að 6 sm, oddbaugótt eða spaðalaga, bogadregin í oddinn með útstæð hár á efra borði, stutt niðursveigð neðan. Laufleggur allt að 6 sm, stöngullauf allt að 1,5 sm, aflöng eða spaðalaga, með aðlæg dúnhár, legglaus.
Lýsing
Blómin hvít eða gul, engin stoðblöð, blómleggir stuttir. Bikar allt að 4 mm, þaktir krókhárum. Krónuflipar bogadregnir, íhvolfur. Smáhnotir hvassydda, dálítið kjalaðar.
Uppruni
Ástralía, Tasmanía, Nýja Sjáland (fjöll)
Harka
8
Heimildir
1
Fjölgun
Auðveldast með sáningu að vori.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í hleðslur.
Reynsla
Hefur haldið sér við með sjálfsáninug í nokkur á á Reykjum (HS), lifa stundum veturinn en verður að teljast fremur viðkvæm. Best að geyma í sólreit eða búa gott vetrarskýli.