Myosotis scorpioides

Ættkvísl
Myosotis
Nafn
scorpioides
Íslenskt nafn
Engjamunablóm
Ætt
Munablómaætt (Boraginaceae).
Samheiti
M. palustris (L.) Hill., M. scorpioides L. ssp. palustris (L.) Hermann
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Skærblár..
Blómgunartími
Maí-júlí.
Hæð
20-50 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt með skriðula jarðstöngla. Stönglar allt að 1 m, jarðlægir eða uppréttir, hárlausir eða með útsæð hár neðst. Neðstu laufin næstum legglaus, allt að 10 x 2 sm, aflöng til bandlensulaga með aðlæg hár einkum á efra borði, hár vita að oddi, oft með þornhár á neðra borði eða hárlaus.
Lýsing
Blómskipunin lengist mikið að blómgun lokinni, engin laufkennd stoðblöð. Aldinleggir 1-2 x lengri en aldinbikarinn, blómleggir allt að 6-10 mm við aldinþroskann. Bikar 1,5-4 mm við blómgun, allt að 6 mm þegar fræin hafa þroskast, með fáein aðlæg hár, flipar 1/2 - 2/3 af lengd bikarsins, stækka við aldinþroskann, þríhyrnd, langæ (haldast eftir aldinþroskann). Krónan skærblá með hvítt, gult eða bleikt auga, 5-10 mm í þvermál, flipar flatir, lítið eitt sýldir. Stíll lengri en bikarpípan og nær oft fram fyrir bikarflipann þegar fræið er fullþroskað. Smáhnetur 1,2-1.8 x 1-1,2 mm, egglaga, snubbótt, glansandi svört eða dökkbrún, hvert með mjóan hring.
Uppruni
Evrópa, Asía, N Ameríka & Nýja-Sjáland.
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti (stinga þarf utan úr því á hverju ári til að halda plöntunni í skefjum!), sáning að vori.
Notkun/nytjar
Við tjarnir og læki, sem undirgróður, í kanta, í breiður, í sumarbústaðaland.
Reynsla
Getur orðið að illgresi í görðum sé ekki fylgst reglulega með því og stungið utan úr þeim plöntum sem eru í garðinum. Vex sem slæðingur hérlendis á nokkrum stöðum.