Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Carlton'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
45-50 sm
Vaxtarlag
Eitt blóm á stilk, hjákróna > 1/3 en < ½ lengd blómblaðanna.
Lýsing
Hávaxið yrki með skær gul blómhlífarblöð, gul hjákróna, stór, lúðurlaga og styttri en blómhlífin, ljósari en blómhlífarblöðin.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðum laukanna.
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður í trjá- og runnabeð, í beðkanta og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til laukar sem keyptir voru í blómabúð 1991 og 2002. Þrífst mjög vel. Mjög gamlar plöntur eru líka til Lystigarður sem og 15 ára plöntur. Eitt besta páskaliljuyrkið í íslenskum görðum.