Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
'Texas'
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Hvítur, hjákróna gul með appelsínurauða kanta.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
Um 40 sm
Vaxtarlag
Plönturnar um 40 sm háar.
Lýsing
Blómhlífin hvít, nokkuð breið og skarast dálítið neðst. Hjákrónan gul með appelsínurauða kanta, ofkrýnd.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
Upplýsingar á umbúðum laukanna.
Fjölgun
Hliðarlaukar. Laukar lagðir í september á 15-20 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í trjá- og runnabeð sem undirgróður og í kanta, í fjölæringabeð og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur frá 1996 og 1997, þrífast vel (2001).