Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
Canasata
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Hvítur, hjákróna sterkgul.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 50 sm
Lýsing
Blómhlífarblöð hvít, hjákróna mjög stór, sterkgul. Hjákrónan klofin að minnsta kosti niður til hálfs.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í beðkanta, sem undirgróður undir tré og runna og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru plöntur frá 1995, laukar keyptir í blómabúð. Þrífast vel, (2011).