Narcissus

Ættkvísl
Narcissus
Yrki form
Cassata
Íslenskt nafn
Skírdagslilja
Ætt
Páskaliljuætt (Amaryllidaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Hvít, hjákróna hvít.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
40-50 sm
Lýsing
Blómhlífarblöð hvít, hjákróna hvít með sítrónugula slikju. Hjákróna klofin a.m.k. niður til hálfs.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Hliðarlaukar.
Notkun/nytjar
Í trjá- og runnabeð, í beðkanta og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til plöntur frá 1985 og 1998, laukar sem keyptir voru í blómabúð. Þrífst vel (2011).